Fara í meginmál
Nútímalegt baðherbergi í Kópavogi með rúnduðu spegli, svörtu skápaplássi og glersturtu

Allt á einum stað · Flísalagnir – Pípulagnir – Raflagnir – Parketlagnir – Hönnun – Múrverk

Frá fyrstu hugmynd að fullbúnu rými

Heimaverk ehf sér um flísalagnir, hönnun baðherbergja, múrverk og tengdar framkvæmdir fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stærri verk. Við mælum rýmið, metum umfangið, gerum tilboð og vinnum verkið með skýru verklagi.

Umsagnir viðskiptavina
  • Tilboð, kostnaðar- og tímaáætlun
  • Flísalagnir og baðherbergi frá A–Ö
  • Verkefni fyrir heimili, fyrirtæki og nýbyggingar
  • Verkefni og umsagnir viðskiptavina

Allt á einum stað

  • Múrverk
  • Flísalagnir
  • Pípulagnir
  • Raflagnir
  • Málun
  • Parket
  • Innréttingar

Heimaverk heldur utan um alla fagaðila, tímaáætlanir og verkstýringu.

Skoða heildarframkvæmdir

Það sem Heimaverk tekur að sér

Hvort sem um er að ræða nýtt baðherbergi, flísalögn í stærra rými, múrverk eða parketlögn, skiptir máli að undirbúningur, efnisval og framkvæmd vinni saman. Heimaverk aðstoðar við að koma verkefninu í skýran farveg áður en framkvæmdir hefjast.

  • 01

    Flísalagnir

    Flísalagnir á baðherbergjum, gólfum, eldhúsum og stærri rýmum. Sérhæfing í stórum flísum og nákvæmum frágangi.

  • 02

    Baðherbergi frá A–Ö

    Hönnun, útfærsla, mælingar, efnisráðgjöf og framkvæmd fyrir baðherbergi sem þurfa að virka vel og líta vel út.

  • 03

    Múrverk

    Almenn múrvinna, undirvinna, lagfæringar og frágangur sem skiptir máli fyrir endingargóða niðurstöðu.

  • 04

    Parket og viðargólf

    Parketlagnir og standsetning gólfa í húsum, íbúðum, nýbyggingum og verkefnum fyrir einstaklinga eða fyrirtæki.

  • 05

    Samhæfð fagvinna

    Þar sem verkefni krefst fleiri faggreina getur Heimaverk samhæft vinnu tengda pípulögnum, raflögnum, málun og öðrum frágangi.

  • Skoða alla þjónustu

Fyrir heimili, verktaka og fyrirtæki

Heimaverk vinnur bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fyrirtækið hefur einnig unnið með stærri byggingarverktökum við standsetningu nýbygginga, uppsetningu innréttinga og parketlagnir.

  • Endurbætur á baðherbergjum og votrýmum
  • Flísalagnir í eldhúsum, rýmum og sameignum
  • Parketlagnir og frágangur nýrra húsa og íbúða
  • Múrverk og undirbúningur fyrir yfirborðsfrágang
  • Samhæfing faggreina þegar það á við
Gólfhitakerfi frá Heimaverk lagt undir viðargólfi í stofu þar sem hundur liggur á heitu gólfinu
Pípulagningamaður frá Heimaverk vinnur við vatnslás undir eldhúsvaski
Nærmynd af pípulagningamanni Heimaverk herða vatnslás undir handlaug

Nokkur verkefni

Dæmi um baðherbergi, flísalagnir og frágang sem Heimaverk hefur unnið.

Fleiri verkefni sem Heimaverk hefur klárað
Baðherbergi í Mosfellsbæ með fríttstandandi baðkari, dökkgrænum flísum og gylltum blöndunartækjum

Baðherbergi

Fallegt baðherbergi í Mosfellsbæ

Glæsilegt baðherbergi í nýju húsi í Mosfellsbæ, þar sem fallegar flísar, hlý lýsing og vandaðar innréttingar skapa stílhreint og rólegt rými. Heildarútkoman er bæði nútímaleg og einstaklega falleg.

Aðalbaðherbergi með Memory Moos Green flísum, kringlóttum spegli og Terrazzo White gólfi

Baðherbergi

Skemmtilegar litablöndur á aðalbaðherbergi

Skemmtilegar litablöndur setja sterkan svip á þetta glæsilega aðalbaðherbergi. Á gólfi og veggjum eru 60x60 Terrazzo White flísar ásamt Memory Moos Green flísum sem gefa rýminu hlýlegan og karakterríkan svip. Flísarnar fást í www.flisabudin.is. Við færðum vegginn framar og létum sníða IKEA skápa og hillur inn í vegginn til að nýta rýmið sem best. Speglar og sturtugler eru frá www.ispan.is. Heildarútkoman er einstaklega flott, stílhrein og vel heppnuð.

Grátt baðherbergi með Queens Manhattan flísum, eikarinnréttingu og tveimur skálarvöskum

Baðherbergi

Baðherbergi sem öðlaðist nýtt líf

Þetta baðherbergi fékk algjöra endurnýjun. Allt gamalt var fjarlægt og rýmið tekið í gegn frá grunni með það að markmiði að skapa hlýlegt, nútímalegt og vandað baðherbergi. Á gólf og veggi voru lagðar 60x60 Queens Manhattan flísar og 60x120 Celio Vein Smooth flísar notaðar sem skrautflísar á bak við innréttinguna. Flísarnar fást í www.flisabudin.is. Innréttingin er frá IKEA og blöndunartækin frá www.byko.is. Sturtugler og spegill eru frá www.ispan.is. Heildarútkoman er stílhrein og fáguð, með fallegu samspili grárra tóna, viðar og hlýlegrar lýsingar.

Fullbúið baðherbergi í Kópavogi sem Heimaverk tók í gegn frá A til Ö

Baðherbergi

Glæsilegt baðherbergi í Kópavogi

Heimaverk tók þetta baðherbergi í gegn frá A–Ö, frá niðurrifi til fullbúins rýmis.

Versace baðherbergi í Norðlingaholti með Statuario Grigio 60x120 flísum

Baðherbergi

Einstakt Versace baðherbergi í Norðlingaholti

Statuario Grigio Marble White 60x120 flísar á veggjum, 80x80 Eterno Patch Carbon við sturtu og bað og Eterno Ice 80x80 Versace flísar á gólfi og klósettkassa. Hannað og flísalagt af Heimaverk.

Baðherbergi í Garðabæ með 60x60 Terrazzo og Rasato Bianco flísum

Baðherbergi

Terrazzo og Rasato Bianco baðherbergi í Garðabæ

Baðherbergi í Garðabæ tekið í gegn með 60x60 Terrazzo og Rasato Bianco 60x60 flísum.

Umsagnir viðskiptavina

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af góðum umsögnum og ánægðum viðskiptavinum.

Gott að eiga samskipti við Heimaverk og allt sem lagt var upp með stóðst. Mælum hiklaust með Heimaverk við alla sem eru á leiðinni í framkvæmdir.

Guðmundur Unnarsson og Kristín Sveinsdóttir

Samstarfsaðilar Heimaverk

Viðskiptavinir Heimaverk ehf fá sérkjör hjá eftirtöldum fyrirtækjum.

  • Flísabúðin
  • Íspan – gler og speglar
  • Pípur og Flísar ehf
  • Steypustöðin
  • Steinlausnir
  • BYKO
  • BAUHAUS

Ertu að undirbúa framkvæmdir?

Sendu Heimaverk stutta lýsingu á verkefninu, myndir af rýminu ef þær eru til og helstu tímasetningar. Við svörum með næstu skrefum og bókum heimsókn ef verkefnið hentar.